þú sefur alveg til hádegis þú deyrð en lifnar við laufblöðin breyta um lit þú finnur til - ferð á fætur íklæddur regnkápu - þú heldur út í skammdegið þú rífur úr hjartarætur sem þú treður á með hendur í vösum, með nóg kominn í votu grasinu geng þangað til það skín á mig í gegnum trjágreinar lít upp og lifna við - laufblöðin breyta um lit við finnum yl, festum rætur afklæðum úr hjörtum við höldum út í góðan dag gróðursetjum og gefum líf og við springum út með hendur úr vösum í mold róta núna fjarlægjum við hugsun ljóta tíminn lagar allt, gefur líf, kyndir upp bál loga sálar ekki lengur kalt, hef aftur líf lifnar mín sál, heiminn mála